Gestir sumarsins 311 talsins
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
22.10.2012
kl. 13.55
Nýting tjaldstæðisins á Borðeyri sumarið 2012 var til umræðu á síðasta fundi byggðarráðs Húnaþings vestra sem haldin var í síðustu viku en þar kom fram að gestafjöldi hafi verið alls 311 talsins.
Í fundargerð Byggðarráðs segir að Ferðaþjónustan í Tangahúsi á Borðeyri hafi verið umsjónaraðili svæðisins sl. sumar og færði byggðarráð rekstraraðilum þess þakkir fyrir samstarfið.
