Gjaldfrjáls skimun hvetur til þátttöku

Krabba­meins­fé­lagið ákvað á þessu ári að gera til­raun og bjóða ákveðnum hóp­um skimun þeim að kostnaðarlausu. Mynd af krabb.is
Krabba­meins­fé­lagið ákvað á þessu ári að gera til­raun og bjóða ákveðnum hóp­um skimun þeim að kostnaðarlausu. Mynd af krabb.is

Fjöldi 23ja ára kvenna sem koma í fyrsta sinn í leghálsskimun og 40 ára kvenna sem koma í brjóstaskimun í fyrsta sinn hefur rúmlega tvöfaldast með nýju tilraunaverkefni Krabbameinsfélagsins sem býður konunum skimunina sér að kostnaðarlausu í ár. Stærstur hluti kvennanna segir að gjaldfrjáls skimun hafi hvatt þær til að taka þátt. Fyrstu fim mánuði ársins hafa rúmlega tvöfalt fleiri konur mætt í fyrstu skimun en á sama tímabili síðasta árs að því er segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Íslands. 

Síðustu áratugi hefur heldur dregið úr þátttöku kvenna í brjósta- og leghálsskimunum. Margt spilar þar inn í, meðal annars greiðsluþátttaka kvenna. Krabbameinsfélagið ákvað á þessu ári að gera tilraun og bjóða ákveðnum hópum skimun þeim að kostnaðarlausu og gera um leið könnun á því hvort kostnaðurinn skipti máli. Könnunin leiðir í ljós sterkar vísbendingar um að greiðsla fyrir skimun hindri umtalsverðan hóp kvenna í að nýta sér skimunina. 

Almennt greiða konur 4.700 krónur fyrir leghálsskimun. Gjaldið er ákvarðað af stjórnvöldum. Tilraunin er alfarið fjármögnuð af Krabbameinsfélaginu og stendur út árið 2019. 

Tvöfalt fleiri í ár en í fyrra 

Konur sem eru í fyrsta sinn boðaðar í leghálsskimun eru 23 ára, fæddar 1996, og þær njóta góðs af verkefninu. Í könnuninni kom fram að 95% þeirra sem tóku þátt sögðu ókeypis skimun hafa hvatt þær til að mæta. Konur eru eldri þegar þær eru fyrst boðaðar í brjóstaskimun, eða 40 ára, og nær verkefnið til kvenna sem fæddar eru 1979. 70% þeirra sögðu að gjaldfrjáls skimun hefði hvatt þær til að taka þátt. Þá sögðu 23% (82 konur) sem svöruðu könnuninni um leghálsskimun og 9% (29 konur) sem svöruðu um brjóstaskimun að þær hefðu ekki komið hefðu þær þurft að borga. 

Árangurinn af tilraunaverkefninu fyrstu fimm mánuði ársins er mjög mikill því rúmlega tvöfalt fleiri 23ja ára konur, eða 557 hafa þegið boð um leghálsskimun á þessu ári miðað við 277 í fyrra. Í brjóstaskoðunum hefur komum 40 ára kvenna fjölgað úr 254 í 572 á tímabilinu. Rannsóknir sýna að konur sem mæta í fyrsta sinn í skimun eru líklegri til að mæta reglulega eftir það þegar þær fá boð í skimun. 

„Þetta staðfestir það sem við höfum lengi haldið fram, að kostnaður við skimunina skipti máli. Krabbameinsfélagið telur afar mikilvægt að skimun verði gerð gjaldfrjáls, líkt og hún er í langflestum nágrannalöndunum, einkum til að tryggja jafnt aðgengi að skimun,“ er haft eftir Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins í tilkynningunni. „Heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir að hún ætli að gera skimunina gjaldfrjálsa, við söknum þess að ráðherra hafi ekki tilgreint hvenær, en treystum því að það verði fljótlega og hlökkum mjög til að heyra hvenær við getum útfært það, konum í landinu til heilla.”

Með skimun fyrir leghálskrabbameini er nánast hægt að koma í veg fyrir sjúkdóminn greinist hann á forstigi og með skimun fyrir brjóstakrabbameini er hægt að draga verulega úr dauðsföllum greinist meinið á byrjunarstigi.

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá þann góða árangur sem þetta verkefni virðist vera að skila. Að auki eru langtímamarkmið og fleiri aðgerðir í þá veru að auka þátttöku kvenna í skimun að skila sér. Árangur er fram úr okkar björtustu vonum og við hlökkum til að gera enn betur grein fyrir honum,” segir Halla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir