Góð aðsókn á haustfundi

Undanfarið hafa haustfundir Landssambands kúabænda verið haldnir víða um land og samkvæmt heimasíðu sambandsins hefur aðsókn verið góð það sem af er. Um tvö hundruð manns mættu á fundina sem haldnir voru í sl. viku. Fundirnir halda áfram í dag í Vopnafirði, Egilsstöðum, Sauðárkróki og Blönduósi. Á morgun verða fundir í Húnaþingi vestra, Austur- og Vestur- Skaftafellssýslum. Fundaferðinni lýkur á miðvikudaginn með fundum undir Eyjafjöllum og á Ísafirði.

Á Naut.is segir að tækifæri til aukningar mjólkurframleiðslu hafi verið bændum efst í huga og hvaða úrræði séu til að nýta þau. Þá hefur staða kvótakerfisins talsvert verið rædd og líkleg þróun á verði greiðslumarks. Þá hefur kynbótastarfið og staða kúastofnsins einnig talsvert borið á góma.

Fundurinn á Sauðárkróki fer fram á Mælifelli kl. 12.00 og Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi kl. 20.30 og á morgun í Ásbyrgi í Miðfirði kl. 12.00.

Fleiri fréttir