Góður íbúafundur um skólabyggingu í Húnaþingi

Mynd af hunathing.is.
Mynd af hunathing.is.

Íbúafundur um fyrirhugaða viðbyggingu við grunnskóla Húnaþings vestra og lóðarskipulag var haldin í félagsheimili Hvammstanga þann 10. apríl sl. Samkvæmt heimasíðu Húnaþings vestra mættu um 40 manns á fundinn. Magdalena Sigurðardóttir og Gunnhildur Melsted, arkitektar hjá VA arkitektum voru með kynningu á viðbyggingu við grunnskólann en vinna við hönnun á innra skipulagi hefur verið í gangi frá áramótum og stendur nú yfir kynningarferli á tillögunni.

Arnar Birgir Ólafsson hjá Teiknistofu Norðurlands kynnti deiliskipulag sem nú er í vinnslu fyrir skólareit frá leikskóla að íþróttahúsi. Fór hann yfir þær hugmyndir sem eru á teikniborðinu varðandi útfærslur á svæðinu s.s. staðsetningar leiktækja, gönguleiða og fl. Einnig greindi hann frá þeirri skemmtilegu vinnu grunnskólanemenda en þau fengu það verkefni að setja á blað hugmyndir af leiktækjum og öðru sem þeim finnst að ætti heima á lóðinni sem verður svo notað áfram í hönnunarvinnunni, segir á Húnaþing.is en þar er hægt að finna nánari upplýsingar um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir