Gönguferð á Sturlungaslóð
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
19.06.2014
kl. 11.44
Gönguferð á Sturlungaslóð verður farin fimmtudaginn 26. júní nk. Mæting er við Miklabæ kl. 19:00 og gengið verður niður að Vötnunum, upp að Víðivöllum og í Örlygsstaði og þaðan til baka að Miklabæ.
Gangan tekur um 2 og hálfan til 3 tíma. Leiðsögumaður er Helgi Hannesson. Allir eru velkomnir og frítt er í gönguna.
Fleiri fréttir
-
Kaupfélag Skagfirðinga er stærsti styrktaraðili Landsmóts
Kaupfélag Skagfirðinga hefur um árabil stutt myndarlega við Landmót hestamanna, ekki síst þau sem haldin hafa verið hér í Skagafirði. Á því verður engin breyting á komandi sumri þegar Landsmót fer fram á Hólum í Hjaltadal, en þar verður KS meðal annars með myndarlegan bás á markaðssvæði mótsins.Meira -
SSNV og SSV kynna skýrslu um línustæði, eignarrétt og endurgjald
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 12.03.2026 kl. 13.42 oli@feykir.isSamtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa látið vinna samantekt um línustæði raflína, eignarrétt og endurgjald til landeigenda. Í frétt á vef SSNV segir að markmið skýrslunnar sé að varpa ljósi á hvernig bætur fyrir lagningu raflína eru ákvarðaðar hér á landi og bera það saman við fyrirkomulag í nágrannalöndum Íslands. Skýrslan, sem var unnin af Torfa Jóhannessyn frá Torfalæk, er liður í því að efla umræðu um réttindi landeigenda, hagsmuni sveitarfélaga og uppbyggingu orkuflutningskerfisins í framtíðinni.Meira -
Framleiðsluárið 2025 að mörgu leyti hagstætt
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 12.03.2026 kl. 13.34 oli@feykir.isHúnahornið tekur upp frétt Bændablaðsins þar sem fjallað er um skýrsluhald sauðfjárræktarinnar og fara tveir ráðunautar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Árni B. Bragason og Eyþór Einarsson, yfir það helsta sem þar ber á góma. Í yfirliti þeirra kemur m.a. fram að framleiðsluárið 2025 hafi verið ákaflega hagstætt að mörgu leyti. Meðalafurðir eftir hverja á voru 28,98 kíló, sem er aðeins meira en árið á undan, en aðeins minna en árið 2021, þegar þær voru 29,46 kíló, en það var metár.Meira -
Stórir hringir og hjartalaga stuðningur
Tindastólsmenn fengu lið Riga Zelli í heimsókn í Síkið í gærkvöldi í 16 liða úrslitum ENBL-deildarinnar. Reiknað var með hörkuleik og það var það sem sannarlega var boðið upp á en því miður þá reyndust gestirnir sterkari, Stólarnir lentu í að elta og gestirnir voru full drjúgir utan 3ja stiga línunnar. Þeir héldu út og sigruðu 94-101 og Stólarnir því úr leik í Evrópudeildinni og sá pakki ekki skoðaður frekar á þessu tímabili.Meira -
Norðanátt og hraglandi í dag
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 12.03.2026 kl. 09.13 oli@feykir.isÞað er hálfgert leiðindaveður á Norðurlandi vestra sem stendur; gæti svosem verið verra en gæti líka sannarlega verið betra. Reikna má með að veðrið verði svipað í mestallan dag; norðan og norðvestan strekkingur að mestu en lægir örlítið af og til. Þessi fylgir ýmist snjókoma eða lítils háttar snjókoma. Nokkuð hefur snjóað frá í gær og er snjór á flestum vegum.Meira
