Hæ hó, jibbí jei
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur auglýst eftir aðila, félagasamtökum eða einstaklingum, sem reiðubúnir eru að taka að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd hátíðarhalda á Hvammstanga á þjóðhátíðardaginn 17. júní nk.
Þeir sem hafa áhuga á því geta skilað inn umsóknum þar um til Sveins Benónýssonar íþrótta- og tómstundafulltrúa í Íþróttamiðsöð eða Ráðhúsi Húnaþings vestra fyrir 12. mars nk. Þar skulu koma fram hugmyndir umsækjanda um dagskrá og annað er lýtur að framkvæmd hátíðarhaldanna.