Heitavatnslaust verður á Hvammstanga og í Víðidal í dag

Lokað verður fyrir heita vatnið á Hvammstanga og Víðidal í dag, miðvikudaginn 28.ágúst, upp úr kl. 15:00. Byrjað verður að hleypa vatni á um miðnættið en tíma getur tekið að koma vatni á alls staðar. 

Á vef Húnaþings vestra er að finna þessar gagnlegu ábendingar til húsráðenda vegna þjónusturofs hitaveitu:

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. 
  2. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir