Helena söng til sigurs í Söngkeppni NFNV

Helena Árnadóttir stóð uppi sem sigurvegari í Söngkeppni NFNV í gær. Mynd: FB-síða FNV.
Helena Árnadóttir stóð uppi sem sigurvegari í Söngkeppni NFNV í gær. Mynd: FB-síða FNV.

Helena Erla Árnadóttir sigraði í Söngkeppni NFNV sem fram fór í gærkvöldi með lagið Anyone eftir Demi Lovato. Í öðru sæti hafnaði Rannveig Sigrún Stefánsdóttir með lagið Bring Him Home eftir Colm Wilkinson og Ingi Sigþór Gunnarsson endaði í þriðja sæti með lagið Á sjó með Hljómsveit Ingimars Eydal.

Á Facebook-síðu Fjölbrautaskólans kemur fram að vel hafi verið mætt í sal skólans þrátt fyrir leiðinda veður. Kynnar kvöldsins voru þær Birgitta Björt Pétursdóttir og Guðný Rúna Vésteinsdóttir og dómnefndina skipuðu þau Anna Valgerður Svavarsdóttir, Erna Rut Kristjánsdóttir og Sveinn Sigurbjörnsson.

„Að þessu sinni kepptu flytjendur með níu lög hvert öðru betra. Mikil og jöfn keppni var á milli flytjenda og eflaust erfitt fyrir dómnefndina að velja sigurvegarana,“ segir í færslunni og hljómsveitin þótti standa sig afburða vel og sló ekki eina feilnótu enda skipuð afbragðs hljóðfæraleikurum.

„Á meðan dómnefndin réð ráðum sínum fluttu þau Lydía Einarsdóttir og Óskar Aron Stefánsson, nemendur úr Varmahlíðarskóla og sigurvegarar söngkeppni Friðar 2019-2020, lag við mikinn fögnuð áhorfenda. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni. Loks komu fram söngvarar og leikarar úr Mamma Mía söngleiknum sem nemendafélag skólans setti upp á yfirstandandi skólaári við fádæma aðsókn. Það er óhætt að segja að áhorfendur hafi skemmt sér vel á frábærri skemmtun sem er nemendafélagi skólans og öðrum nemendum hans til mikils sóma,“ segir á Facebook-síðu FNV en þar er einnig hægt að sjá fjölda mynda frá kvöldinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir