Hrútfirðingar heitavatnslausir um helgina

Gera þarf við lagnir að borholu á Reykjatanga, við Reykjaskóla, og því verður vatn tekið af hitaveitunni í Hrútafirði í um þrjár klukkustundir eftir hádegi í dag 22. nóvember. Heitavatnslaust verður einnig um helgina.

Á heimasíðu Húnaþings vestra kemur fram að prufudæla eigi tvær borholur á Reykjatanga um helgina og því verður ekkert vatn á hitaveitunni í Hrútafirði laugardaginn 23. nóvember og sunnudaginn 24. nóvember. Aðgerðin hefst um kl. 8 í fyrramálið og verður vatnslaust allan daginn en hleypt á aftur um kvöldið. Sama gildir um sunnudaginn. Einhvern tíma getur tekið að koma vatni á alla veituna.

Húsráðendur eru beðnir að hafa í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum og að við viðgerðir kunni óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á.

„Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessu kann að fylgja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir