Kaup og sala greiðslumarks í sauðfé

Mynd af vef stjórnarráðsins/Golli.
Mynd af vef stjórnarráðsins/Golli.

Innlausn greiðslumarks í sauðfé og úthlutun til þeirra framleiðenda sem óskuðu eftir kaupum hefur farið fram og segir á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að framkvæmdin sé í samræmi við breytingar sem gerðar voru á sauðfjársamningi við endurskoðun hans sl. vetur og tóku gildi þann 19. nóvember sl.

Um úthlutunina gilda forgangsreglur þar sem framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra hafa forgang að 60% þess greiðslumarks sem er í boði á markaði og skiptist hlutfallslega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Það greiðslumark sem þá er eftir er boðið öðrum kaupendum sem og þeim aðilum er nutu forgangs, hlutfallslega í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa.

Óskir um innlausn á greiðslumarki voru 97 talsins og innleysir ríkið greiðslumark samtals sem nemur 6.625 ærgildum.  Óskir um kaup á greiðslumarki voru 182 talsins og var óskað alls eftir 46.493 ærgildum.   Í heildina er hlutfall til úthlutunar  14,2% af óskum um kaup.  Óskir um kaup í forgangshópi nema 39.500 ærgildum og er 3.975 ærgildum ráðstafað til forgangshóps (60%). Þá var  2.650 ærgildum úthlutað til alls hópsins sem er þá 5,7% af ósk um kaup.

Hver framleiðandi í forgangshópi fær því alls 15,7% af kaupósk sinni úthlutað en framleiðandi í almennum hópi fær úthlutað 5,7% af kaupósk sinni.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir