Lífshlaupið hafið

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var ræst í 13. sinn í morgun, í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er markmið þess að hvetja alla til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta.

Í tilkynningu frá ÍÓÍ segir að Lífshlaupið sé góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig og skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið. En auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sín á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur. Fullorðnir að lámarki 30 mínútur á dag og börn og unglingar að lámarki 60 mínútur á dag.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

•           vinnustaðakeppni frá 5. – 25. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
•           framhaldsskólakeppni frá 5. – 18. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
•           grunnskólakeppni frá 5. – 18. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
•           einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Til þess að taka þátt í keppninni þarf að skrá sig til leiks á heimasíðu Lífshlaupsins, lifshlaupid.is og fara svo að skrá hreyfinguna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir