Miðfjarðará og Blanda á svipuðu róli
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
02.09.2013
kl. 11.30
Miðfjarðará og Blanda eru á svipuðu róli og undanfarnar vikur og halda 5. og 6. sætinu fyrir aflahæstu laxveiðiár landsins, samkvæmt veiðitölum á angling.is. Úr Miðfjarðará voru komnir 2903 laxar sl. fimmtudag og 2498 laxar úr Blöndu.
Í öðrum laxveiðiám á landinu var staðan eftirfarandi sl. fimmtudag:
Laxá á Ásum: 883
Vatnsdalsá: 865
Víðidalsá: 646
Hrútafjarðará og Síká: 440
Svartá: 278
Fljótaá: 208
