Nú er hægt að lesa Feyki á netinu
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
24.02.2021
kl. 14.05
siggag@nyprent.is
Nýjasta tbl Feykis kom út í hádeginu og ef þú hefur áhuga á að gerast rafrænn áskrifandi þá er um að gera að smella á þennan link og skrá sig inn HÉR:)
Ef þú ert núþegar áskrifandi og vilt líka fá rafrænan aðgang vertu þá í sambandi við okkur í síma 455 7171.
Fleiri fréttir
-
Frábær samvera á prjónakvöldi í Drangey Studio
Í fyrrakvöld héldu systurnar sem standa á bak við Rendur, RA handlitun og Drangey Studio, enn eitt prjónakvöldið í Drangey Studio á Aðalgötu 4 á Króknum. „Það var yndislegt að sjá hversu margir mættu og sérstaklega gaman að fólk skyldi leggja leið sína til okkar meðal annars frá Akureyri og Skagaströnd,“ sagði Helgarut Hjartardóttir þegar Feykir spurðist fyrir um hvernig til hefði tekist en Rendur og Drangey Studio hafa staðið saman að handavinnutengdum viðburðum síðastliðin þrjú ár og fyrir ári síðan bættist RA handlitun í hópinn.Meira -
Eldur í Húnaþingi sameinar íbúa á skemmtilegan hátt
Húnavöku í Húnabyggð er ekki fyrr lokið á sunnudaginn næstkomandi en grannarnir í vestri, íbúar í Húnaþingi vestra, grípa gleðiboltann á lofti því hin árlega hátíð, Eldur í Húnaþingi, hefst strax á mánudag og stendur í viku. Semsagt dagana 20.-26. júlí. Til að fræðast örlítið um Eld í Húnaþingi og hvað þar verður á döfinni hafði Feykir samband við viðburðastjórann Petrek Óla Gústafsson.Meira -
Heimildarmynd um endurheimt Brimnesskóga í Skagafirði
Pálmar Örn Guðmundsson hefur nýlega lokið við gerð heimildarmyndar um endurheimt hinna fornu Brimnesskóga í Skagafirði – náttúruskóga sem Ari fróði greinir frá í Landnámu. Myndinni fylgir enskur texti.Heimildarmyndin er í tveimur hlutum og er hún aðgengileg á YouTube. Í henni er greint frá sögu horfinna skóga í Skagafirði og þeirri vitneskju að Ísland hafi við landnám verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru.Meira -
Götugrill og styrktarbingó á Húnavöku
Húnavaka hófst í gær með Gömludansaballi en það má kannski segja að fjörið hefjist fyrir alvöru seinni partinn í dag þegar grillað verður í boði Húnabyggðar og Ölgerðarinnar í tjaldi framan við Félagsheimilið á Blönduósi. Ekki er annað að sjá í kortunum en að veðrið muni standa með íbúum Húnabyggðar á Húnavöku næstu dagana.Meira -
Staðan á Stólastúlkum hefur batnað
Talsverð umræða skapaðist um síðustu helgi þegar lið Tindastóls þurfti að gefa leik sinn gegn liði Keflavíkur í Lengjudeild kvenna vegna manneklu. Næsti leikur Stólastúlkna er gegn liði Selfoss nú á laugardaginn og fer fram á Króknum. Fyrri leikur liðanna endaði með 3-1 sigri Selfoss. Feykir spurði Domi þjálfara hvort staðan á hópnum hefði skánað frá því um síðustu helgi.Meira
