Ráðherra kynnir Hálendisþjóðgarð á fundum um allt land

Mynd af halendid.is
Mynd af halendid.is

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fer á næstu dögum í hringferð um landið og kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, en frumvarp þar að lútandi er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Einn fundur verður á Norðurlandi vestra nk. þriðjudag 7. janúar í Húnavallaskóla.

Á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytis kemur fram að frumvarpið taki til stofnunar þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Er það í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.

Á fundunum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Þriðjudagurinn 7. janúar
                13:30 Borgarnes, Hótel Hamar
                17:30 Húnavatnshreppur, Húnavallaskóli

Miðvikudagurinn 8. janúar
                11:00 Reykjadalur, Félagsheimilið Breiðumýri
                18:00 Egilsstaðir, Hótel Hérað

Fimmtudagurinn 9. janúar
                13:00 Öræfi, Hótel Skaftafell í Freysnesi
                18:00 Hvolsvöllur, Midgard

Mánudagurinn 13. janúar
                17:00 Reykjavík, Veröld – hús Vigdísar, fyrirlestrasalur. Fundurinn verður í beinu streymi á netinu.

 Fundirnir eru öllum opnir – verið velkomin.

Nánar um drög að frumvarpi um Hálendisþjóðgarð
Spurt og svarað um Hálendisþjóðgarð
Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð í samráðsgátt stjórnvalda

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir