Ráðið í starf forstöðumanns þróunarsviðs hjá Byggðastofnun

Sigríður Elín Þórðardóttir. Mynd:byggdastofnun.is
Sigríður Elín Þórðardóttir. Mynd:byggdastofnun.is

Sigríður Elín Þórðardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar en alls bárust 24 umsóknir um starfið. Á vef Byggðastofnunar segir að Sigríður, sem lauk mastersnámi í félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 2004, hafi  yfir að ráða yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af starfi að byggðamálum og hafi starfað sem sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar allt frá árinu 2000. Í starfi sínu á Byggðastofnun hefur Sigríður Elín unnið að fjölbreyttum verkefnum og stýrt stórum samstarfsverkefnum á verkefnasviði stofnunarinnar, jafnt innlendum sem erlendum. 

Sigríður Elín tekur til starfa sem forstöðumaður þróunarsviðs þann 1. janúar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir