Ríflega hundrað hross fórust í fárviðrinu

Nú liggur fyrir að ríflega 100 hross fórust í hamfaraveðrinu sem gekk yfir Norðurland vestra dagana 10.-12. desember 2019 og segir á heimasíðu MAST að um mestu afföll á hrossum í áratugi er að ræða. Sá fjöldi svarar til um 0,5% þeirra 20.000 hrossa sem ætla má að hafi verið á útigangi á þessu landssvæði.

Hross fórust á 46 bæjum, þar af 29 í Austur-Húnavatnssýslu (61 hross), níu í Vestur-Húnavatnssýslu (20 hross) og á átta bæjum í Skagafirði (22 hross). Oftast var um að ræða eitt til fjögur hross á hverjum bæ, sem gerir að meðaltali tvö hross á bæ. Dreifingin endurspeglar að afföllin verða ekki rakin til óviðunandi aðbúnaðar eða undirbúnings á einstaka bæjum en ljóst má vera að veðrið kom mishart niður á svæðum innan landshlutans. Hross á öllum aldri fórust í óverðinu; 29 folöld, 34 trippi og 30 hryssur, en einnig drápust 15 hestar, flestir fullorðnir. Hryssurnar voru sömuleiðis í flestum tilfellum í eldri kantinum og því má segja að elstu og yngstu aldurshóparnir hafi orðið verst úti í óveðrinu.

Á mast.is segir að algengast hafi verið að hross hefði hrakist undan veðri í skurði, girðingar eða aðrar hættur en einnig fennti hross sem stóðu í skjóli, þ.m.t. hross sem rekin höfðu verið sérstaklega í skjól og gefið þar. Dæmi voru um tveggja metra snjódýpt niður á hræin, en gríðarlegir skaflar mynduðust hvar sem skjól var að finna. Almennt séð var harðara á hrossum á jörðum nærri ströndinni á meðan hross sem stóðu hærra í landinu sluppu mun betur, líklega vegna þess að þar var kaldara og ekki hlóðst á þau ís með sama hætti.

„Afar óvenjulegt er að saman fari svo hart norðan áhlaup með mikilli úrkomu og hitastigi við frostmark. Veðurskilyrðin leiddu til þess að slydda lagðist á hrossin og fraus þar. Hrossin urðu klömbruð og þung sem gerði þeim erfiðara fyrir að standa af sér þá langvarandi stórhríð sem á eftir fylgdi þar sem veðurhæðin náði styrk fellibyls á köflum. Skjól kom ekki að gagni þar sem aðstæður voru verstar og átti það jafnt við um manngerða skjólveggi og náttúrulegt skjól. Hross voru alla jafna í góðu standi fyrir áhlaupið enda hafði haustið verið hagfellt hrossum á útigangi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir