Samfylkingin auglýsir eftir frambjóðendum í Norðvesturkjördæmi

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum til alþingiskosninga sem fram fara í haust. Kosið verður um fjögur efstu sætin á framboðslistanum á auknu kjördæmisþingi skv. lið 3.3. b. lið í reglum flokksins um val á framboðslista. Stuðst verður við reglur um paralista skv. skilgreiningu úr reglum flokksins.

Frestur til að tilkynna framboð rennur út þriðjudaginn 23. mars kl 23.00. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í eitt af fjórum efstu sætunum tilkynni það til kjörstjórnar í netfangið nordvestur@xs.is. fyrir þann tíma. Kjörstjórn mun kynna frambjóðendur tveimur sólarhringum fyrir fundinn.

Kjördæmisþingið verður haldið rafrænt og rétt til að sitja þingið með atkvæðisrétt eru félagar í Samfylkingunni tilnefndir af sínum aðildarfélögum. Kjörskrá lokar viku fyrir fundinn skv. reglum flokksins þ.e.a.s. 20. mars kl. 10.00.
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir