Sérstök lán til nýbygginga á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason undirritaði breytingar á reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs á Drangsnesi í Steingrímsfirði í morgun. Aðsend mynd.
Ásmundur Einar Daðason undirritaði breytingar á reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs á Drangsnesi í Steingrímsfirði í morgun. Aðsend mynd.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í morgun breytingar á reglugerð sem gerir það að verkum að sveitarfélög, einstaklingar og óhagnaðardrifin félög á landsbyggðinni muni fljótlega geta tekið lán hjá Íbúðalánasjóði til húsnæðisuppbyggingar á stöðum þar sem önnur fjármögnun er ekki í boði. Undirritunin fór fram á Drangsnesi í Steingrímsfirði en Vestfirðir eru einmitt dæmi um landsvæði þar sem markaðsbrestur veldur því að ekki er byggt íbúðarhúsnæði þrátt fyrir mikla eftirspurn.

Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu kemur fram að bæta þurfi aðgengi að lánsfjármagni á landsbyggðinni til að bregðast við þeim húsnæðisvanda og stöðnun í húsbyggingum sem þar ríkir. Fjármögnunin sé háð því að um nýbyggingar sé að ræða og er aðeins í boði á þeim stöðum þar sem opinber húsnæðisáætlun, staðfest af Íbúðalánasjóði, sýnir að skortur sé á húsnæði af því tagi sem byggja á.

Einnig er skilyrði fyrir því að geta fengið áðurnefnd lán að lántaki sýni fram á að hann fái ekki lán hjá öðrum lánastofnunum eða fái einungis lán á verulega hærri kjörum en almennt bjóðast á öðrum markaðssvæðum.

Í reglugerðinni kemur fram að markmið lánveitinganna sé að tryggja eðlilega fjölgun íbúða á þessum svæðum, aukið húsnæðisöryggi óháð búsetu auk þess að stuðla að heilbrigðum húsnæðismarkaði og viðskiptum með íbúðarhúsnæði.

„Það liggur fyrir að á mörgum stöðum hefur ekkert eða mjög lítið verið byggt um árabil, þrátt fyrir að eftirspurnin sé mikil og greiðslugeta hjá íbúum svæðisins góð. Sveitarfélögin hafa sérstaklega bent á skort á viðeigandi leiguhúsnæði. Með reglugerðarbreytingunni, sem ég undirritaði í morgun, verður hægt að fá lán til byggingar nýs húsnæðis á svæðum sem glíma við þetta sérstaka misvægi í byggingarkostnaði og markaðsverði. Það mun styðja við atvinnuuppbyggingu á mörgum stöðum og hefur reynslan af sambærilegum lánveitingum á Norðurlöndum verið góð. Ég hlakka til að sjá fólk komast í viðeigandi húsnæði sem starfar og býr á þeim svæðum sem lánaflokkurinn tekur til,“ segir Ásmundur Einar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir