Sex teymi þreyttu áskorun Byggðastofnunar á hakkaþoni háskólanemanna

Sigurvegarar hakkamaraþons Byggðastofnunar ásamt Evu Pandoru Baldursdóttur, sérfræðingi stofnunarinnar. Mynd: Byggðastofnun.is.
Sigurvegarar hakkamaraþons Byggðastofnunar ásamt Evu Pandoru Baldursdóttur, sérfræðingi stofnunarinnar. Mynd: Byggðastofnun.is.

Um liðna helgi fór fram í Háskóla Íslands hakkaþon háskólanema þar sem Byggðastofnun lagði fram áskorun úr stefnumótandi byggðaáætlun og byggði áskorunin á lið B.7, störf án staðsetningar, og var meginmarkmið hennar að komast að því hvernig hægt væri að búa svo um að það yrði ákjósanlegt fyrir ungt og menntað fólk að búa og starfa á landsbyggðinni.

Á heimasíðu Byggðastofnunar kemur fram að horfa átti meðal annars til samfélagslegra, tæknilegra og félagslegra þátta við úrlausn áskorunarinnar en sex teymi tóku þátt og voru úrlausnirnar allar áhugaverðar og frumlegar.

„Það teymi sem hlaut vinninginn fyrir bestu úrlausnina var liðið „Byggðafjarðarvinnsla“ en þau bjuggu til þjálfunaráætlun fyrir opinberar stofnanir og ráðuneyti um hvernig eigi að hafa starfsfólk án staðsetningar. Horft var til þess að nú þegar er til tækni sem gerir starfsfólki kleift að starfa án staðsetningar en ekki hefur enn verið samræmt hvernig samskiptum á milli stofnana og starfsfólks án staðsetningar sé best háttað, m.a. með tilliti til samskipta við samstarfsfólk og yfirmenn, vinnustaðamenningu og starfsánægju. Að auki hefur ekki enn farið fram formleg kennsla fyrir starfsfólk sem starfar án setningar um hvernig sé hægt að nýta sér tæknina með sem bestum hætti. Í úrlausninni fólst að stofnanir og ráðuneyti fái fræðslu um þessi málefni ásamt eftirfylgni, til þess að hægt sé að nýta störf án staðsetningar með sem bestum hætti,“ segir á byggdastofnun.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir