Skipað í verðlagsnefnd búvara

Frá bændadögum í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki 2015. Mynd: BÞ
Frá bændadögum í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki 2015. Mynd: BÞ

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í samræmi við ákvæði búvörulaga skipað verðlagsnefnd búvara en hún er skipuð sjö einstaklingum. Samkvæmt búvörulögum skulu tveir fulltrúar vera tilnefndir af samtökum launþega, tveir af Bændasamtökum Íslands, tveir af Samtökum afurðastöðva í mjólkurframleiðslu auk þess sem ráðherra landbúnaðarmála skipar formann nefndarinnar.

Samtök launþega, þ.e. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og stjórn Alþýðusambands Íslands, hafa ákveðið að nýta ekki rétt sinn til tilnefningar. Í samræmi við ákvæði búvörulaga féll það því í hlut félags- og jafnréttismálaráðherra að tilnefna þessa tvo fulltrúa. 

Verðlagsnefnd búvara er þannig skipuð:
•             Friðrik Már Baldursson, formaður, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

•             Arnar Árnason, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
•             Guðrún Lárusdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
•             Pálmi Vilhjálmsson, tilnefndur af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
•             Jóhanna Hreinsdóttir, tilnefnd af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
•             Ragnar Árnason, tilnefndur af félags- og jafnréttismálaráðherra
•             Helga Ingólfsdóttir, tilnefnd af félags- og jafnréttismálaráðherra

Einnig hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipað Hálfdán Óskarsson, framkvæmdastjóra mjólkurvinnslunnar Örnu, sem fulltrúa minni vinnslufyrirtækja mjólkur sem áheyrnarfulltrúa í nefndina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir