Skráning á Svínavatn 2015
Mótið Svínavatn 2015 verður haldið laugardaginn 28. febrúar. Samkvæmt fréttatilkynningu er ísinn afbragðs góður og útlit gott með veður og færi.
Skráningar berist á netfangið thytur1@gmail.com í síðasta lagi þriðjudaginn 24. febrúar. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.
Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru: A-flokkur, B-flokkur og Tölt.
Skráningargjald eru 3.500. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307-13-110240 Kt: 480269-7139 og setja sem skýringu fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.