Snörp sunnanátt og hlýindi fram yfir hádegi á Norðurlandi vestra
Nokkuð kröpp lægð röltir nú yfir landið og má reikna með talsverðum vindi hér á Norðurlandi vestra. Ekki eru neinar veðurviðvaranir í boði í dag frá Veðurstofunni enda er hlýtt, um tíu stiga hiti, og lítil eða engin úrkoma í kortunum. Þegar þessi frétt er skrifuð er bálhvasst við Stafá en þar er vindur 24 m/sek og slær í 40! Það kólnar aðeins þegar líður á daginn og dregur úr vindi.
Spáin gerir ráð fyrir að hvassast verði á annesjum en á Hrauni á Skaga og við Stafá í Sléttuhlíð gæti vindur verið um 17-18 m/sek um hádegisbil í dag. Húnavatnssýslurnar virðast fá heldur lágstemmdari vind. Lægðinni fylgja hlýindi en við Sauðanesvita er reiknað með allt að 14-15 stiga hita á tímabili í dag.
Skaplegu veðri er spáð fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 4. nóvember, eða hita á bilinu 5-6 gráður og hóflegri sunnanátt. Framhald verður á sunnanáttinni fram á helgi og varla snjókorn að sjá í kortunum fyrr en að henni liðinni.
Allir vegir eru færir nema hálendisvegir en vegaframkvæmdir og ósléttir vegir á Skagavegi vestanverðum, í Vatnsdal og í Blöndudal.
