SSNV leita að verkefnisstjóra iðnaðar

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, leita eftir einstaklingi til að sinna starfi verkefnisstjóra iðnaðar. Hér er um nýtt og spennandi verkefni að ræða sem hefur það að markmiði að laða fjárfestingar í landshlutann til að fjölga þar störfum, að því er segir í auglýsingu um starfið. Ráða á í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Umsóknarfrestur um starfið er til 2. desember nk.

Meðal þess sem verkefnisstjóri á að sinna er:

  • Mat á fyrirliggjandi hugmyndum um iðnaðaruppbyggingu á Norðurlandi vestra.
  • Markaðssetning landshlutans sem fýsilegs fjárfestingarkosts, þ.m.t. gerð kynningarefnis, bein markaðssetning, samskipti við fjárfesta og fleira.
  • Áframhaldandi greining á innviðum.
  • Gerð viðskiptaáætlana og markaðsgreininga.
  • Samskipti við hagsmunaaðila.
  • Að koma auga á tækifæri til atvinnuskapandi fjárfestinga í landshlutanum.

Hæfniskröfursem gerðar eru :

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Haldbær þekking/reynsla af rekstri. Reynsla af fjárfestingum og atvinnuuppbyggingu er kostur.
  • Þekking á greiningu iðnaðarkosta m.t.t. alþjóðlegrar tækni- og viðskiptaþróunar er kostur.
  • Þekking/reynsla af markaðsmálum.
  • Reynsla af verkefnisstjórnun.
  • Góð almenn tölvufærni.
  • Samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri SSNV, Unnur Valborg Hilmarsdóttir á unnur@ssnv.is. Umsóknum skal skilað á netfangið ssnv@ssnv.is í síðasta lagi 2. desember nk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir