Starf slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Húnaþings vestra laust til umsóknar

Húnaþing vestra hefur auglýst starf slökkviliðsstjóra til afleysingar í eitt ár laust til umsóknar. Um er að ræða 75% starf auk bakvakta. Þar af er áætlað að um 25% starfsins sé akstur með eldri borgara í dagvistun.

Í auglýsingu á vef Húnaþings vestra segir að meðal verkefna slökkviliðsstjóra sé daglegur rekstur slökkviliðs, fræðsla og þjálfun slökkviliðsmanna, dagleg umhirða og minniháttar viðhald búnaðar, ásamt eldvarnareftirliti á starfsvæði Brunavarna Húnaþings vestra og öðru því sem til falli innan starfssviðs samkvæmt lögum og reglugerðum sem við eiga.

Slökkviliðsstjóri gengur bakvaktir á móti varaslökkviliðsstjóra og varðstjórum eftir nánara samkomulagi. Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkviliðsins og heyrir beint undir sveitarstjóra. Slökkvistöð Brunavarna Húnaþings vestra er staðsett á Hvammstanga.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri í síma 455 2400 eða Pétur Arnarsson slökkviliðsstjóri í síma 895 1995.

Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2020. Umsóknir skal senda á Húnaþing vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, merkt: “Slökkviliðsstjóri – Brunavarnir Húnaþings vestra”, eða á netfangið: rjona@hunathing.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir