Stofnun Félags smáframleiðenda matvæla í burðarliðnum

Frá REKO afhendingu á Blöndúósi sl. vetur. Mynd:FE
Frá REKO afhendingu á Blöndúósi sl. vetur. Mynd:FE

Stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla verður haldinn þann 3. september nk. frá kl. 13-15 í fundarsal í húsakynnum Samtaka iðnaðarins, Borgartúni 35, 104 Reykjavík. 

Ólík verkefni sem hafa verið unnin á vegum Matarauðs Íslands undanfarin tvö ár hafa gefið til kynna þörf á öflugra samstarfi og samtakamætti smáframleiðenda matvæla. Dæmi um slík verkefni eru hinir svokölluðu REKO hópar þar sem milliliðalaus viðskipti milli smáframleiðenda og neytenda fara fram í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og greining á starfsemi Beint frá býli. 

Samkvæmt Oddnýju Önnu Björnsdóttur ráðgjafa, sem unnið hefur að ýmsum verkefnum fyrir Matarauð Íslands og fleiri, starfar mikill og vaxandi fjöldi smáframleiðenda matvæla í landinu. „Þeir séu að verða sífellt sýnilegri og fyrirferðameiri á markaði og um leið hafi eftirspurn eftir slíkum matvælum stóraukist. Því sé kominn tími til að þeir sameinist í einu félagi sem vinni að hagsmunamálum þeirra á ólíkum sviðum, sé opinber málsvari þeirra og stuðli að framförum í málefnum sem þá varðar.“ 

Fundarboð má finna á Facebook undir heitinu: Stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla - vinnufundur og eru áhugasamir hvattir til að haka við hvort þeir sjái sér fært að mæta. Hægt verður að tengjast fundinum í gegnum fjarfundarbúnað. 

Fundurinn er öllum opinn, en smáframleiðendur eru hvattir til að mæta og leggja sitt lóð á vogaskálarnar við gerð greiningar á styrkleikum, veikleikum, ógnunum og tækifærum íslenskra smáframleiðenda matvæla, samþykkta félagsins, aðgerðaáætlunar og taka þátt í kosningu stjórnar. Auglýst er eftir áhugasömu öflugu fólki í stjórn.

DAGSKRÁ
13:00 Fundur settur og farið yfir aðdragandann
13:15: SVÓT greining
13:45: Samþykktir (drög þegar til staðar til að vinna út frá)
14:15: Aðgerðaáætlun
14:45: Kosning stjórnar
15:00: Fundi slitið

 

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir