Tryggvi Guðmundsson ráðinn þjálfari Kormáks Hvatar

Tryggvi Guðmundsson skrifar undir hjá Kormáki Hvöt
Tryggvi Guðmundsson skrifar undir hjá Kormáki Hvöt

Það er með mikilli ánægju að stjórn meistaraflokks Kormáks Hvatar kynnir Tryggva Guðmundsson til leiks sem þjálfara liðsins. Hér er um hvalreka fyrir húnvetnskt íþróttalíf að ræða, þar sem ferilskrá Tryggva er löng og glæsileg. Meðal annars þá er hann markahæsti leikmaður allra tíma í deildarkeppnum á Íslandi, á tugi landsleikja að baki og spilaði með góðum árangri í sterkum liðum í atvinnumennsku erlendis.

Tryggvi og stjórn knattspyrnudeildarinnar hafa sameiginlega sýn á sumarið. Eftir tvö sumur í röð þar sem Kormákur Hvöt fest sig í sessi sem eitt af betri liðum deildarinnar, unnið sinn riðil og komist alla leið að lokaleiknum um sæti í þriðju deild, þá er það kýrskýrt markmið að klára málið í sumar. Við ætlum að leika í þriðju deild sumarið 2022.

Tryggvi verður í sumar búsettur á Bönduósi og hefur þegar tekið til starfa. Fyrsti leikur Kormáks Hvatar á vorönn verður gegn hinum fornu fjéndum í Knattspyrnufélagi Breiðholts og fer fram laugardaginn 6. mars.
Áfram Kormákur Hvöt!

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir