Vígsla viðbyggingar við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Nýbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga. Mynd:hunathing.is
Nýbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga. Mynd:hunathing.is

Á morgun, þriðjudaginn 1.október klukkan 18:00, verður viðbygging Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra vígð  Af því tilefni er íbúum og gestum boðið til móttöku og gefst þeim tækifæri til að skoða aðstöðuna og njóta veitinga. 

Á dagskrá eru  hestafimleikasýning og tónlistaratriði sem sönghópurinn Jóma flytur og ávörp þeirra Þorleifs Karls Eggertssonar, oddvita sveitarstjórnar Húnaþings vestra, Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, Guðmundar Grétars Magnússonar, fulltrúa menningarráðs Húnaþings vestra og ávarp fulltrúa frá Ungmennasambandi Vestur-Húnvetninga sem er fyrirmyndarfélag ÍSÍ. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir