Viltu ferðast um slóðir Vestur-Íslendinga - umsóknarfrestur rennur út í dag
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
01.03.2013
kl. 10.57
Snorri West verkefnið auglýsir eftir þátttakendum í fjögurra vikna sumarverkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 18-28 ára. Ferðast verður á slóðir Vestur-Íslendinga í alberta, Saskatchewan, Manitoba og Norður-Dakóta. Umsóknarfresturinn rennur út í dag 1. mars.
Umsókn sendist á heimasíðu verkefnisins á www.snorri.is. Nánari upplýsingar má fá í gegnum netfangið info@snorri.is (Ísland) eða snorriwestna@yahoo.com (Kanada).
