V-Húnavatnssýsla

Styrkjum búsetu á landsbyggðinni

Árið 2020 hefur verið mjög sérstakt fyrir okkur öll og sennilega eru margir fegnir því að það renni nú bráðum sitt skeið. Ég er sannfærður um að 2021 verði okkur betra og það eru mjög jákvæð teikn á lofti að svo verði. Þegar ég horfi yfir árið 2020 og þau verkefni sem við í félagsmálaráðuneytinu höfum verið að vinna, horfi ég til baka stoltur en árið litaðist að mörgu leyti af viðbrögðum við heimsfaraldri Covid-19. Ég er hins vegar mjög ánægður og stoltur af því að hafa náð að koma þremur stórum baráttumálum mínum á dagskrá þrátt fyrir aðstæður í heiminum en þau eiga það öll sameiginlegt að styrkja búsetu á landsbyggðinni.
Meira

Beðist velvirðingar á vandamálum tengdum kosningum

Í gær hófst kosning á Manni ársíns 2020 á Norðurlandi vestra hér á Feykir.is. Því miður hafa margir lent í vandamálum með að kjósa og er beðist velvirðingar á því. Vesenið er tæknilegs eðlis og vonumst við til að það verði leyst fljótt og örugglega.
Meira

Hálendisþjóðgarður vinstri grænna?

Umhverfisráðherra mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um stofnun hálendisþjóðgarðs. Strax vakti athygli hversu mikil andstaða er við málið hjá samstarfsflokkum VG í ríkisstjórn. Almenn og vel ígrunduð andstaða er við málið hjá hagsmunaaðilum landið um kring, svo sem bændum, sveitarfélögum og fyrirtækjum sem starfa í og við fyrirhugaðan þjóðgarð svo ekki sé talað um einstaklinga og félagasamtök sem hafa áhyggjur af frjálsri för fólks um svæðið, en andstaða samstarfsflokka VG í ríkisstjórn er meiri en reiknað var með.
Meira

Jólalag dagsins – Björt jól

Jólalag dagsins er heimafengið en höfundur og flytjandi er hin mjög svo efnilega söngkona Ásdís Aþena Magnúsdóttir á Hvammstanga. Lagið samdi hún þegar hún var 11 ára en eftir mikla pressu frá foreldrum sínum ákvað Ásdís að klára lagið Björt jól sem hafði legið óklárað ofan í skúffu í fimm ár.
Meira

Gráþrösturinn hans Róberts Daníels prýðir forsíðu Feykis

Við Feykisfólk erum alveg rígmontin með myndina sem prýðir jólakveðjublaðið sem kom út nú í vikunni og erum fullviss um að fallegri mynd er ekki á nokkurri forsíðu fyrir þessi jólin. Myndina tók Blönduósingurinn Róbert Daníel Jónsson og var það auðsótt mál að fá listaverkið hans til birtingar.
Meira

Kosning um Mann ársins 2020 á Norðurlandi vestra er hafin

Feykir stendur fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gefst kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust tilnefningar um sjö einstaklinga. Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur. Kosningin er hafin og lýkur á miðnætti á nýársdag, 1. janúar.
Meira

Síðasta tölublað Feykis á árinu er komið út

Síðasta tölublað Feykis á þessu ári kom út í gær og kennir þar margra grasa að vanda. Blaðið er 32 blaðsíður og í því er að finna fjöldann allan af jólakveðjum frá fyrirtækjum og félagasamtökum til íbúa Norðurlands vestra.
Meira

Húnaþing vestra fær styrk úr Orkusjóði

Orkusjóður hefur úthlutað 192 milljónum króna til 55 verkefna í orkuskiptum af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Á vef Orkustofnunar kemur fram að alls var sótt um rúmar 482 milljónir króna til 76 verkefna sem styðja flest við áframhaldandi rafvæðingu bílaflotans. Áherslan er nú á bílaleigur, samgöngufyrirtæki og sveitarfélög. Einnig er stutt við uppbyggingu innviða til nýtingar á metangasi og raforku til fóðurpramma í fiskeldi. Eiga verkefnin það öll sammerkt að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að aukinni notkun á innlendri og vistvænni orku.
Meira

Síðustu forvöð að panta listagjöf

Umsóknarfrestur til að panta Listagjöf fyrir ástvin rennur út á miðnætti í kvöld, 17. desember. Listagjöf er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og Listahátíðar í Reykjavík og kemur í framhaldi af viðbragðsverkefni þeirra, Listagjöf, sem vakti mikla lukku í Reykjavíkurborg í byrjun nóvember. Áætlað er að hið minnsta 100 listamenn muni að þessu sinni dreifa allt að 750 listagjöfum á tugi áfangastaða um land allt.
Meira

Stytting vinnuviku eykur lífsgæði og hamingju

Íslenskur vinnumarkaður hefur gjörbreyst frá því sem áður var. Tækniframfarir hafa verið gríðarmiklar undanfarna áratugi og fjölbreytni starfa er mikil. Sum þeirra eru þess eðlis að það er hægt að vinna þau í 40 tíma á viku án þess að það hafi skaðleg áhrif á meðan önnur stofna heilsu fólks í hættu, sé unnið svo lengi. Spurningin er sú hvort við ættum ekki frekar að miða lengd vinnuvikunnar við þekkingu dagsins í dag og nútímasamfélagið í stað þess að miða við samfélagið eins og það var fyrir 50 árum. Stytting vinnuvikunnar hefur verið baráttumál BSRB og aðildarfélaga undanfarin ár og var meðal þess sem ávannst í kjarasamningunum í mars síðastliðnum.
Meira