Fréttir

Hvíti riddarinn í tómu tjóni á Blönduósi

Það var leikið á Blönduósvelli á sama tími rabarbaranum var gert hátt undir höfði í Gamla bænum. Gestir Kormáks/Hvatar að þessu sinni var lið Hvíta riddarans úr Mosfellsbænum og þeir voru sendir rakleiðis heim að leik loknum með 4-0 tap á bakinu.
Meira

KR-liðið skaut Stólastúlkur á kaf og sér á toppinn

Stólastúlkur fengu skell í Vesturbænum á laugardag þar sem lið KR beið þeirra. Það boðar nú sjaldnast nokkuð gott að fá á sig fimm mörk í fyrri hálfleik og það var hola sem gestirnir gátu ekki grafið sig upp úr. Með sigrinum skelltu Vesturbæingar sér á topp deildarinnar. Lokatölur 6-0 og lið Tindastóls á botni Lengjudeiildar.
Meira

Rjómalagað pasta og frönsk súkkulaðikaka | Matgæðingur vikunnar

Matgæðingur vikunnar í tbl. 6 fékk áskorun frá vinkonu sinni, Kristey Rut, en það er körfuboltasnillingurinn Inga Sólveig Sigurðardóttir frá Sauðarkróki. Gaman er að segja frá því að Inga Sólveig var nú á dögunum að skrifa undir samning við Tindastól fyrir komandi átök í haust. Inga Sólveig og kærastinn hennar, Almar Atli Ólafsson frá Litla-Felli á Skagaströnd, búa á Króknum. Almar Atli starfar hjá Þ. Hansen en Inga Sólveig stundar nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri.
Meira

Mótssvæðið á Hólum í toppstandi fyrir Landsmót

Nú eru að verða liðin tíu ár frá síðasta Landsmóti hestamanna á Hólum og varla nema rétt rúm vika þar til fyrstu knapar leiða fram hesta sína á LH 2026 á Hólum. Það er ekki laust við að tilhlökkun og eftirvænting liggi í skagfirska loftinu. Það liggur því beint við að fá Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra mótsins, reynslubolta og kennara í viðburðahaldi, til að segja lesendum frá stöðu mála en viðtalið var tekið um miðjan júní.
Meira

Tælensk risarækjusúpa og bleikjutaco | Feykir mælir með..

Eru ekki flestir að reyna að borða hollt og gott í sumar? Allir á fullu í ræktinni og eru aldeilis búnir að setja sér markmið með að skafa af sér aukakílóin? Þá er kominn tími á að Feykir mæli með tveimur hollum og góðum réttum fyrir þá sem hafa áhuga á að prufa eitthvað nýtt í kvöldmatinn. Fyrri uppskriftin er matarmikil og bragðgóð súpa og seinni uppskriftin sameinar það besta úr íslenskri náttúru og mexíkóskri matargerð. Uppskriftirnar eru af mbl.is sem og myndirnar.
Meira

Tólf hljómsveitir spila í Græna salnum

Tónleikarnir Græni salurinn verða haldnir á morgun, laugardaginn, 27. júní í Bifröst en þeir litu fyrst dagsins ljós fyrir rúmum 20 árum en ‏á hétu ‏þeir VSOT, Viltir svanir og tófa. Feykir heyrði í Sigfúsi Arnari Benediktssyni gítarleikara í hljómsveit Árna Finnssonar og einum að skipuleggjendum tónleikana.
Meira

Norðurland vestra mætir sterkt til leiks

Undanfarnar vikur hafa hestamannafélög um land allt verið að halda úrtökumót til að velja fulltrúa sína á Landsmótið að Hólum sem hefst 5. júlí næstkomandi. Félögin á Norðurlandi vestra hafa gengið frá sínum keppendalistum ogná sjá þá hér í fréttinni.
Meira

Stólarnir sterkir á heimavelli

Í rigningunni í gær, fimmtudaginn 25. júní mættust Tindastóls og Sindra úr Höfn í Hornafirði í tíundu umferð 3. deildar karla. Leikurinn endaði 4-2 fyrir heimamenn og Matheus Bettio Gotler með tvennu.
Meira

Jafnvægið hefur raskast | Umræða um Króksmót

Talsverð umræða hefur skapast í kjölfar Króksmóts stúlkna sem fram fór á Sauðárkróki um liðna helgi. Þátttaka á mótinu var dræm svo ekki sé meira sagt en aðeins 27 lið frá sex félögum mættu til leiks að þessu sinni en liðin hafa jafnan verið í kringum 100 og mest 118. Fækkun varð í fyrra en þá tóku 68 lið þátt. Þessi knattspyrnumót eru jafnan mikilvæg tekjulind fyrir félögin og skipta oft höfuðmáli í starfseminni fyrir utan hvað þau eru skemmtileg og gefandi. Nú virðist sem stóru klúbbarnir sæki í sífellt stærri bita af kökunni. Feykir heyrði hljóðið í Guðbjörgu Óskarsdóttur mótsstjóra Króksmótsins sem og Eysteini Pétur Lárussyni framkvæmdastjóra KSÍ.
Meira

Aldrei dauð stund á Norðurlandi vestra

Nóg er um að vera á Norðurlandi vestra þessa dagana. Núna um helgina verða alls kyns viðburðir og hátíðir, Græni salurinn í Bifröst, HIP Fest á Hvammstanga, Rabarbarahátíðin á Blönduósi og Seinasta sveitaballið hjá Greifunum í Miðgarði.
Meira