Garðfuglahelgi Fuglaverndar

Skógarþröstur. Mynd: Sindri Skúlason.
Skógarþröstur. Mynd: Sindri Skúlason.

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar stendur yfir dagana 24.-27. janúar. Hér er um að ræða fastan lið í starfsemi félagsins sem vanalega á sér stað síðustu helgina í janúar. Felst hann í því að þátttakendur fylgjast með garði sínum einhvern tiltekinn dag þessa helgi og skrá hjá sér fjölda fugla sem í garðinn koma.

Í fréttatilkynningu Fuglaverndar segir að framkvæmd athugunarinnar sé einföld, aðeins þurfi að velja stund og stað og fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Oft er gott að velja klukkutíma í ljósaskiptunum á morgnana, eða fyrir rökkur þegar fuglarnir eru að ná sér í forða fyrir kalda vetrarnóttina.  

Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og skrá mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir, telja skal þá sem koma í fuglafóðrið, setjast á grein og hvíla sig.  Ekki má leggja saman. Þetta er til að forðast tvítalningar á sama fuglinum, sem ef til vill kemur á 15 mínútna fresti í garðinn.  Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður rafrænt á vef Fuglaverndar​ ​www.fuglavernd.is​.  

Einnig er hægt að hlaða niður hjálparblaði talningarinnar sem er með myndum af algengum fuglategundum og er það tilvalið fyrir börn og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í fuglaskoðun. 

Allir geta tekið þátt í athuguninni, ekki þarf að vera félagi í Fuglavernd til að vera með og vonast Fuglavernd eftir að sem flestir sem fóðra fugla sjái sér það fært. Ef fuglunum er ekki gefið reglulega er gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein.  

Nánari upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar, https://fuglavernd.is/verkefnin/gardfuglar/fodrun-gardfugla/

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir