Fréttir

„Miðflokkurinn í Skagafirði fordæmir alfarið fordóma er varða kyn, kynferði og kynvitund“

Töluverð umræða hefur skapast um orð Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, um fána hinsegin fólks í skólum landsins. Af þessu tilefni hefur Feyki borist yfirlýsing frá Högna Elfari Gylfasyni og Jódísi Helgu Káradóttur sem skipa tvö efstu sæti Miðflokksins í Skagafirði. Þar segir meðal annars að „...þessi orðræða á ekki á nokkurn hátt samhljóm með stefnu Miðflokksins og hreint alls ekki um framboð flokksins hér í Skagafirði.“ Tilkynningin er birt í heild sinni í fréttinni.
Meira

Tekið til kostanna í kvöld

í reiðhöllinni Svaðastöðum verður líf og fjör í kvöld því þar verður „Tekið til kostanna" hestasýning með léttum brag. Skagfirskir hestar og menn í öllum útgáfum. Sérstaklega má nefna „Töltgrúbbuna" hóp glæsikvenna sem æft hafa vikum saman munsturreið sem þær munu sína gestum.
Meira

Hefur þú prufað að gera í heimagert paté?

Í tölublaði 44, 2025, sem kom út um miðjan nóvember þá vildi svo skemmtilega til að ég var nýbúin að fara á jólahlaðborð og að sjálfsögðu þá klikkaði maturinn ekki. Ég verð að viðurkenna að ég er hrifnari af forréttunum og þá sérstaklega paté-inu. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég ætti að reyna að gera paté sjálf og fór á stúfana á netinu. Það var reyndar ekki auðvelt að finna þær en hér koma tvær. Fyrri uppskriftin er af síðunni Gulur rauður grænn og salt og var Högni S. Kristjánsson gestabloggari hjá þeim. Hann var einnig með uppskrift af rauðlaukssultu sem fær að fljóta með. Seinni uppskriftin er af síðunni www.kryddogkrasir.com.  
Meira

Skagafjörður sem áfangastaður - grípum tækifærin | Rósanna Valdimarsdóttir skrifar

Ég hugsa oft um hvaða upplifun ferðamenn fara heim með eftir heimsókn til okkar í Skagafjörð. Ferðalög eru í mínum huga það eina sem ég eyði peningum í sem gerir mig ríkari. Ekki af hlutum, heldur af minningum, nýjum sjónarhornum og sögum sem móta mig og hvernig ég hugsa. Hver einasta ferð gefur mér eitthvað sérstakt sem ég fæ hvergi annars staðar keypt fyrir peninga.
Meira

Viðtal við Pétur Rúnar, herra Skagafjörð

Á facebooksíðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls kemur fram að kominn sé í loftið nýr þáttur af myndvarpinu „Stóllinn”! Myndvarpið er unnið í samstarfi við Kvikmyndabraut Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra.
Meira

Sæluvikan heldur áfram

Það er föstudagur í Sæluviku og ýmislegt í gangi. Söfnin eru opin; Safnahúsið með sína Indriða sýningu, Vatnaveröldin hans Ómars er opin frá 1. til 5. Eyþór Árna heldur áfram sínu ljóða ferðalagi og verður á Reynistað kl:5. Krakkar frá Ársölum syngja í Skagfirðingabúð kl:10.15.
Meira

Indverskur kjúklingaréttur og frönsk súkkulaðikaka | Matgæðingur Feykis

Matgæðingur vikunnar í tbl. 45, 2025, var Hugrún Líf Magnúsdóttir en hún fékk áskorun frá systur sinni, Selmu Björt, að taka við matgæðingaþætti Feykis. Hugrún og maki hennar, Birgir Knútur, eru búsett á Sauðárkróki og er hún fædd og uppalin á Króknum en Knútur er frá Þingeyri. Hugrún er eins og stendur í fæðingarorlofi en starfar sem sjúkraliði og Birgir Knútur starfar sem lögreglumaður. Hugrún og Knútur eiga þrjú börn, þau Aran Leví, Amalíu Eldey og lítinn Knútsson.
Meira

Frá körfuknattleiksdeild Tindastóls. UNDANÚRSLIT - MIÐASALA Leikur 21. apríl

Jæja, kæra Tindastólsfólk! Það er vor í lofti, partýtjaldið stóð af sér páskahretið og eftir létta pásu, sem vonandi hefur verið vel nýtt í að draga fram fánann, hreinsa kúrekahattinn og rifja upp söngtexta Grettismanna, er komið að því sem við öll höfum beðið spennt eftir. – Hvernig ætlar Indriði að skipuleggja miðasöluna í undanúrslitaseríunni!?
Meira

Fréttatilkynning | Hamrahlíðarkórinn heimsækir Blönduós

Kór MH syngur í Blönduóskirkju á sunnudaginn kl.15:00. Aðgangur er ókeypis! 75 ungmenni á aldrinum 16-19 flytja þekktar kórperlur í bland við nýleg kórverk.
Meira

Stokkið og kastað í Varmahlíð

Laugardaginn 11. apríl s.l. fór fram í Varmahlíð Stökkmót Smára en það er mót í Stökkmótaröð í atrennulausum stökkum og hástökki með atrennu fyrir 30 ára og eldri. Var þetta í fimmta skiptið sem Stökkmót Smára er haldið en fyrsta mótið fór fram 2022. Þátttaka í mótinu var góð og var þetta fjölmennasta mótið í sögu mótaraðarinnar.
Meira