Fréttir

Ótrúlega mikil gleði fólgin í því að vinna saman alþjóðlega

Sagt var frá því í byrjun vikunnar að Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga stæði fyrir uppsetningu á splunkunýrri brúðuleikhússýningu, Rót, hjá Leikfélagi Akureyrar nú á laugardaginn og hefst sýningin kl. 16:00. Feykir spurði listakonuna Gretu Clough, sem er bandarísk að uppruna, aðeins út í sýninguna en Greta býr á Hvammstanga ásamt manni sínum, Sigurði Líndal, og dóttur þeirra. Fyrst var spurt hvernig sagan hefði komið til.
Meira

„Það væri öllum til hagsbóta ef samvinna sveitarfélaganna í landshlutanum yrði enn þéttari“

„Við höfum allt þetta kjörtímabil verið að vinna að gríðarlega mikilvægum verkefnum t.d. þeim sem snúa að breytingu á orkulögum og nýrri byggðarlínu sem snerta hagsmuni allra íbúa núna og um langa framtíð, þau verkefni halda áfram og þótt trollið sé orðið fullt þá þarf að koma því upp á dekk og aflanum í land þannig að hægt sé að búa til verðmæti. Þetta hefur verið verkefnið og verður ennþá næstu misseri,“ segir Pétur Bergþór Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar, aðspurður um hver mikilvægustu verkefnin séu sem sveitarfélagið hyggst vinna að á þessu ári. Pétur er þriðji sveitarstjórinn á Norðurlandi vestra sem svarar spurningum Feykis þetta vorið.
Meira

ABBABABB!

Árshátíð 1. -7. bekkja í Varmahlíðarskóla var haldin með glæsibrag síðasta Vetrardag í Miðgarði. Hátíðin hófst á að 1. til 3. bekkur sýndi léttar æfingar sem kölluðust: Íþróttafjör, alskyns hopp og stökk og höfðu hátíðargestir gaman að. Síðan tók við sýning á söngleiknum: Abbababb, eftir Doktor Gunna. Blaðamanni taldist svo til að ca. 30 leikarar hefðu stigið á svið auk dansara og bakraddasöngvara.
Meira

Þórarinn Eymunds sigraði í Meistaradeild KS 2026

Lokarimman í KS-deildinni fór fram föstudagskvöldið 17. apríl. Óhætt er að segja meistarabragur hafi verið á keppninni og mikið lagt undir. Þórarinn Eymundsson tók þetta á lokasprettinum og sigraði einstaklingskeppnina með 36 stig. Í öðru sæti varð Mette Mannseth með 33 stig og í því þriðja Vera Schneiderchen með 30 stig.
Meira

Á sama tíma að ári | Eva Guðbjartsdóttir skrifar

Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi á föstudaginn síðastliðinn leikritið Á sama tíma að ári eftir Berndard Slade, í leikstjórn Ingrid Jónsdóttur. Verkið er sett upp í tengslum við Sæluvikuna eins og leikfélagið er vant að gera. Sýningin var einstaklega vel upp sett og hef ég sjaldan setið í leikhúsi þar sem jafn mikið er hlegið. Leikritið er hlýlegt og tekst að fanga á einstaklega mannlegan hátt hvernig tíminn mótar sambönd og sjálfsmynd. Leikmyndin var einföld en áhrifarík og skilaðu sínu.
Meira

Tímar og tækifæri í Skagafirði | Högni Elfar Gylfason skrifar

Skagfirðingar þekkja öðrum fremur hversu mikil lífsgæði felast í því að búa hér. Hér er öflugt atvinnulíf, landbúnaður, sjávarútvegur og samheldið samfélag sem stendur saman á raunarstund. Samfélag sem slíkt er ekki sjálfsagt heldur ávöxtur samheldni og vináttu íbúanna. En það er líka staðreynd að alltaf má gott bæta. Undanfarin ár hefur ýmislegt setið á hakanum. Innviðir hafa víða látið á sjá. Framkvæmdir hafa ekki alltaf fengið nægilegan undirbúning, í sumum tilfellum hefur vantað bæði skýra forgangsröðun og samráð við íbúa, þar má gera betur. Miðflokkurinn vill leggja þar hönd á vogarskálarnar.
Meira

Helga og Sigurður Bjarni fengu afhent starfsmerki UMFÍ

Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið 20. apríl nk. kl. 17:00 í Húsi frítímans við Sæmundargötu Sauðárkróki en þetta var 106. ársþing UMSS. Á þinginu fengu þau Helga Daníelsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson afhent starfsmerki UMFÍ en þau hafa bæði unnið mikið og gott starf fyrir skíðadeild Tindastóls.
Meira

„Það var enginn kirkjukuldi í Ketukirkju“

Það bar við í Sæluviku að Eyþór skáld Árnason frá Uppsölum í Blönduhlíð, en búsettur í höfuðborginni, stóð fyrir svokallaðri Ljóðavísitasíu. Hann heimsótti átta kirkjur í Skagafirði á fimm dögum og las upp úr ljóðabókum sínum og greip jafnvel í gítar. Hann sagði Feyki að túrinn hefði gengið alveg ljómandi vel. „Allavega skemmti ég mér mjög vel, kom í margar kirkjur sem ég hef aldrei komið í áður.“
Meira

Körfuboltavöllurinn í Hlíðarhverfi tekinn í gegn

Hafnar eru framkvæmdir við lagfæringar á körfuboltavellinum í Hlíðarhverfi á Króknum. Það má sjá myndir frá framkvæmdum á Facebook-síðu Þ. Hansen sem annast verkið. Feykir spurði Gunnar Pál Ólafsson, verkstjóra Þjónustumiðstöðvar á veitu- og framkvæmdasviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði, hvað standi til.
Meira

Umhverfisdagur FISK Seafood er 9. maí

Skráning er hafin fyrir Umhverfisdag FISK Seafood þann 9. maí 2026, kl. 10:00-12:00 Skipulag er með sama hætti og fyrri ár, þið skráið ykkur og veljið það íþróttafélag sem þið viljið styrkja. Þegar nær dregur verða birtar leiðbeiningar um hvaða svæði tilheyrir hverju íþróttafélagi.
Meira