A-Húnavatnssýsla

Stelpur rokka á Norðurlandi

Stelpur rokka! eru sjálfboðaliðarekin samtök sem starfa af feminískri hugsjón við að efla ungar stelpur í gegnum tónlistarsköpun. Kjarninn í starfinu eru rokksumarbúðirnar, þar sem stelpur læra á hljóðfæri, spila saman í hljómsveit, kynnast farsælum tónlistarkonum, fræð­ast um ýmsar hliðar tónlistar og jafnréttisstarfs og koma fram á lokatónleikum fyrir framan fullan sal vina og fjölskyldu. Samtökin fagna fimm ára afmæli og hafa nú verið stofnuð undirsamtök, Stelpur Rokka Norðurland. Feykir ræddi við Önnu Sæunni Ólafsdóttur verkefnisstýru um samtökin og rokkbúðir sem haldnar verða á Akureyri í lok mánaðarins.
Meira

Fjölmenni í góðri göngu í Trölla

Ferðafélag Skagfirðinga stóð í gær fyrir göngu frá Kálfárdal í Trölla. Þátttaka var með allra mesta móti, 32 göngugarpar á öllum aldri tóku þátt. Veðrið lék við þátttakendur og friðsælt umhverfið skartaði sínu fegursta. Að sögn Ágústs Guðmundssonar, formanns Ferðafélags Skagfirðinga var þessi ganga sú næst fjölmennasta sem hann man eftir á vegum félagsins.
Meira

Hátíðin sem gleður húnvetnsk hjörtu

Húnavaka, bæjarhátíð og fjölskylduskemmtun Austur-Húnvetninga, verður haldin dagana 14.–17. júlí nk. „Hátíðin hefur skipað sér fastan sess hjá heimamönnum sem og brottfluttum Blönduósingum. Segja má að hátíðin sé nokkurs konar „reunion“ fyrir brottflutta Blönduósinga sem hafa sótt hana vel undanfarin ár sem og heimamenn og aðrir gestir, enda allir velkomnir á Blönduós,“ sagði Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, annar umsjónaraðili hátíðarinnar, í samtali við Feyki. Þetta er fjórða árið sem þau systkinin, Kristín og Eysteinn Pétur, annast framkvæmd hátíðarinnar.
Meira

Klausturkirkjan að Þingeyrum kom í leitirnar við fornleifarannsóknir

Þingeyraverkefnið, sem verið er að hleypa af stokkunum, var kynnt fyrir íbúum í Austur-Húnavatnssýslu á Þingeyrum í síðustu viku. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem er í raun þríþætt. Það miðar að uppgreftri minja tengdum klaustrinu, greiningu gróðurfars á miðöldum í næsta nágrenni þess og loks athugunum á handritamenningu miðalda.
Meira

Leiðsögunám áformað næsta vetur

Næsta skólaár verður boðið upp á svæðisleiðsögunám á Norðurlandi vestra, ef nægur áhugi reynist fyrir hendi. Verða þá 20 ár síðan síðast var boðið upp á námið á þessu svæði.
Meira

Blanda komin yfir 1000 laxa

Veiðin í Blöndu er komin yfir 1000 laxa þetta árið og vermir áin annað sæti á lista Landssambands veiðifélaga yfir 75 aflahæstu laxveiðiár landsins. Samanlögð veiði í tíu aflahæstu ám landsins er rúmlega tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra.
Meira

Náttúruhlaup við Húnaver

Dalahlaupið Ultra Valley Run 2016 fer fram í Húnaveri 23. júlí næstkomandi og er þetta í annað sinn sem hlaupið fer fram. Í ár er boðið upp á þrjár vegalengdir, 36 km hring, leið B, 28 km beina leið og 10 km.
Meira

Ljósmyndasýning á Blönduósi

Á Húnahorni má sjá að „Leyst úr læðingi“ er nafn á ljósmyndasýningu sem stendur yfir í júlí og ágúst í Íþróttahúsinu á Blönduósi. Ljósmyndarinn heitir Vigdís H. Viggósdóttir en hún útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum í Reykjavík árið 2014. Vigdís hefur farið víða með ljósmyndir sínar en þær eiga allar það sameiginlegt að fjalla um mann, náttúru, samspil efnis og anda.
Meira

Ungt fólk til áhrifa eða skrauts?

Ég heiti Rúnar Gíslason og ég er með ólæknandi áhuga á samfélagsmálum. Einmitt þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér í 1.-3. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Þeir sem vita að ég er bara tvítugur drengtittur úr Borgarfirði finnst það kannski svolítið djarft, verulega bratt, örlítið klikkað eða hugsanlega jafnvel verulega frekt að sækjast eftir mögulegu þingsæti, þegar væntanlega er völ á eldra og reyndara fólki í þessi hlutverk. Og kannski er þetta meira segja allt í senn, djarft, bratt, klikkað og frekt. Það er samt alls ekki meiningin og það skal ítrekað að þessi ákvörðun er tekin af góðum hug og fyrst og fremst vegna áhuga á velferð samfélagsins.
Meira

Sjötíuþúsund Frakkar áttu ekki roð í hvatningarhróp okkar Íslendinga

Evrópumeistaramótið í knattspyrnu lauk um helgina þegar Portúgalir hömpuðu Evrópumeistaratitlinum í fyrsta sinn. Frakkar þóttu sigurstranglegir fyrir leik og komu úrslitin mörgum á óvart, enda áttu þeir talsvert betri leik gegn Íslandi en Portúgalar. Þóra Kristín Þórarinsdóttir var stödd á á leik Íslands og Frakklands þann 3. júlí og segir stemninguna í áhorfendapöllunum hafa verið magnaða þrátt fyrir mótbyr í fyrri hálfleik.
Meira