112 dagurinn í Húnaþingi vestra
Á morgun, þriðjudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn um land allt. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþingi vestra að efna til hópaksturs um Hvammstanga.
Allir fá að fara í bílana á meðan pláss leyfir og verður lagt af stað í hópaksturinn frá Húnabúð - slökkvistöð kl. 17:15.
Að hópakstrinum loknum verður öllum tækjum lagt við Húnabúð og slökkvistöð ásamt því að opið hús verður til kl. 18:30. Þar verður hægt að skoða búnað, tæki og fleira og kynnist starfseminni sem fer fram hjá viðbragðsaðilum.
Að deginum í Húnaþingi vestra standa Björgunarsveitin Húnar, Brunavarnir Húnaþings vestra, Hvammstangadeild RKÍ, Lögreglan Blönduósi og Sjúkraflutningar Húnaþingi vestra.