Aðventustund og aðventuhátíð

Aðventan hefst n.k. sunnudag, 30. nóvember, og verður aðventustund og aðventuhátíð af því tilefni á Hvammstanga. Aðventustundin verður á sjúkrahúsinu en aðventuhátíðin í Hvammstangakirkju.

Aðventustundin verður í setustofu sjúkrahússins og hefst hún kl. 17:00. Þar mun Kirkjukór Hvammstanga flytja aðventu- og jólasálma. Fermingarbörnin taka einnig þátt í stundinni.

Um kvöldið kl. 20:00 verður svo aðventuhátíð í Hvammstangakirkju þar sem Kirkjukór Hvammstanga flytur aðventu- og jólasálma. Barnakór úr 6-9 ára starfinu syngur við raust, börn úr TTT-starfinu sýna brúðuleik, fermingarbörnin flytja bænir og unglingar úr Æskulýðsfélagi Hvammstangakirkju flytja jólalag.

Ræðumaður kvöldsins er Ína Björk Ársælsdóttir og Halldór Sigfússon er kynnir kvöldsins.
Að stundinni lokinni býður Hvammstangakirkja hátíðargestum upp á smákökur og heitt súkkulaði í safnaðarheimili kirkjunnar.

Frá þessu er greint í auglýsingu í 48. tölublaði Sjónaukans.

Fleiri fréttir