Afhentu Krabbameinsfélaginu milljón
feykir.is
Skagafjörður
06.11.2013
kl. 11.46
Nemendur 7. og 8. bekkjar í Varmahlíðarskóla afhentu í gær Krabbameinsfélagi Skagafjarðar eina milljón króna sem var afrakstur söfnunar þeirra síðustu vikna. Þann 29. október sl. hlupu krakkarnir Hegraneshringinn svokallaða gegn áheitum en hann telur alls 65 km.
Það voru þær Dalla Þórðardóttir varaformaður Krabbameinsfélags Skagafjarðar og Gígja Sigurðardóttir gjaldkeri félagsins sem tóka við hinni rausnarlegu gjöf nemenda 7. og 8. bekkjar í Varmahlíðarskóla í gær en óhætt er að segja að verkefnið hafi verið einkar glæsilegt hjá krökkunum.
Myndir frá hlaupinu er hægt að nálgast á heimasíðu skólans varmahlidarskoli.is