Ágætis opnun í Víðidalsá

Veiðivefur Mbl.is greinir frá því að fjórir laxar hafi komið að landi í Víðidalsá á mánudag, sem var opnunardagur í ánni. Þykir það ágæt byrjun en aðstæður voru frekar erfiðar, 18 stiga hiti, sól og logn. Auk laxanna fjögurra sem komu á land slapp rúmlega annar eins fjöldi. Stærsti laxinn sem veiddist var 92 cm hrygna úr Harðeyrarstreng.

Á veiðivefnum kemur jafnframt fram að sett hafi verið í laxa í Síðukrók, Kotbakka, Gapastokk, Torfhyl og Neðri Valhyl. Í Fitjá voru það Kerið, Bugur, Hrísahylur og Ullarkvörn sem gáfu laxa. Þrátt fyrir að heildartalan hafi ekki verið hæri eftir daginn þykir þetta ágætis byrjun í ánni sem átti afleitt sumar í fyrra.

Þá var góður rómur gerður að nýrri viðbyggingu veiðihússins Tjarnarbrekku en þar er nú gestamóttaka og sex glæsileg tveggja manna gistiherbergi.

Fleiri fréttir