Allra síðasta sýning á Rjúkandi ráð

Í kvöld kl. 20 er allra síðasta sýning á leikritinu Rjúkandi ráð sem Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi á opnunardegi Sæluvikunnar þann 27. apríl síðastliðinn. Minnt er á að Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar, Starfsmannafélag KS og Íbúðalánasjóður bjóða félagsmönnum sínum á sýningar.

Sýningin er jafnframt sú tíunda og þakkar leikfélagið góðar undirtektir. Miðasala er í síma 849 9434 og heimasíðu Leikfélagsins má sjá hér.

Fleiri fréttir