Anton Ari í mark Stólanna

Á vef Tindastóls kemur fram að markvörðurinn tvítugi Anton Ari Einarsson hefur gengið í raðir Tindastóls í 1. deildinni, en hann kemur á lánssamningi frá Val. Anton gekk nýlega í raðir Vals frá Aftureldingu þar sem hann var aðalmarkvörður í fyrra. Fyrr í vetur var hann á Englandi í nokkrar vikur þar sem hann æfði með bæði Manchester City og Bolton Wanderers.

Sebastian Furness sem upphaflega átti að verja mark Tindastóls í 1. deildinni í sumar en hann kom ekki til landsins af persónulegum ástæðum.

Fleiri fréttir