Árekstur á Sauðárkróki
Tveir bílar skullu harkalega saman á Aðalgötu á Sauðárkróki um tvöleytið í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki slasaðist ökumaður annars bílsins lítillega og var hann fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri.
Slysið atvikaðist þannig að bifreið, sem var á leið út af bílastæði hjá Trésmíðaverkstæðinu Ýr, ók í veg fyrir bíl sem keyrði norður Aðalgötuna. Bílarnir skemmdust talsvert og er annar þeirra talinn ónýtur. Hinum var ekið af vettvangi.
Þá varð útafakstur við Brekkukot í Óslandshlíð sl. föstudag þar sem bíllinn endaði ofan í skurði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ökumaðurinn talinn með minni háttar meiðsl, hann var fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Bíllinn var dreginn af vettvangi með kranabíl.
Sama dag átti sér stað umferðaóhapp í Húnaþingi vestra þar sem bíl var ekið utan í vegrið við Brú í Hrútafirði. Engin slys urðu á fólki og var bíllinn fjarlægður af eiganda.