Árekstur þriggja bíla á Hvammstanga

Þrjár bifreiðar urðu fyrir skemmdum í árekstri sem varð í dag á Hvammstanga. Samkvæmt heimildum Mbl.is slasaðist ökumaður einnar bifreiðarinnar talsvert og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.

Slysið átti sér stað með þeim hætti að bifreið var beygt til vinstri á gatnamótum í veg fyrir aðra sem kom úr gagnstæðri átt. Bifreiðarnar skullu saman og runnu síðan vegna hálku á þriðju bifreiðina sem var kyrrstæð.

Fleiri fréttir