Ársreikningur samþykktur í seinni umræðu

Ársreikningur Sveitarfélagins Skagafjarðar fyrir árið 2013 lagður fram til síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær, miðvikudaginn 7. maí og samþykktar í sveitarstjórn, en hann samanstendur af upplýsingum um A-hluta sveitarsjóðs og A og B hluta samantekinn. Rekstrarhagnaður A og B hluta á árinu 2013 er 314 millj. króna og rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um 11 millj. króna.

Rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar námu á árinu 3.902 millj. króna af samstæðunni í heild. Þar af voru rekstrartekjur A-hluta 3.289 millj. króna.

Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 3.198 millj. króna, þar af A-hluti 3.012 millj. króna.

Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 703 millj. króna, þar af er rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð fyrir afskriftir og fjármagnsliði um 277 millj. króna.

Afskriftir eru samtals 142 millj. króna, þar af 79 millj. króna hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals um 228 millj. króna, þ.a. eru 171 millj. króna fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs.

Rekstrarhagnaður A og B hluta á árinu 2013 er 314 millj. króna og rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um 11 millj. króna.

-Í frétt sem birtist í vef sveitarfélagsins, skagafjordur.is, þakkar Margeir Friðriksson, sviðsstjóri stjórnsýslu og fjármálasviðs og staðgengill sveitarstjóra, fyrir þann góða árangur sem náðst hefur í rekstri sveitarfélagsins og þeim sem komu við vinnu við gerð ársreikningsins.

Töluverðar umræður sköpuðust um ársreikninginn áður en hann var samþykktur í annarri umræðu.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:

Ánægjulegt er að sjá jákvæða niðurstöðu reksturs A og B hluta á árinu 2013.
Afkoman er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og munar þar um 250 m.kr. auknar rekstrartekjur sem eru m.a. vegna aukinna framlaga Jöfnunarsjóðs, hærri skatt- og þjónustutekna. Eitt af því sem ársreikningur á m.a. skv. lögum að sýna, er hversu vel sveitarfélagið hefur staðist þá fjárhagsáætlun sem formlega var gefin út fyrir árið. Sjá má að rekstrargjöld A hlutans eru 152 m.kr. hærri en áætlun og samantekið A og B hluta 142 m.kr. hærri. Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins hafa hækkað mjög á kjörtímabilinu á hvern íbúa en þær eru nú um ein milljón og fjögurhundruð þúsund krónur en voru í ársbyrjun 2010 liðlega ellefuhundruðu þúsund krónur. Hækkun skulda er langt umfram almennar verðlagshækkanir á sama tímabili.
Það er því ljóst að þrátt fyrir jákvæða rekstrarniðurstöðu sem ber að fagna, þá þarf að stíga varlega til jarðar hvað varðar fjárfestingar og enn frekari skuldaaukningu sveitarfélagsins. Mikilvægt er að reksturinn verði með þeim hætti að hann skapi svigrúm til þess að greiða niður skuldir næstu árin"

Jón Magnússon tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsa ánægju með niðurstöðu ársreiknings sveitarfélagsins fyrir árið 2013. Rekstrarafgangur er jákvæður umfram þær áætlanir sem lágu fyrir á árinu. Þetta sýnir að þær aðhaldsaðgerðir sem sveitarstjórn hefur unnið eftir á síðari hluta kjörtímabilsins eru að skila árangri.
Þótt þakka megi bætta rekstrarafkomu á síðasta ári auknum framlögum frá Jöfnunarsjóði, hærri skattekjum og gengishagnaði að stórum hluta, er vert að benda á að helstu útgjaldaliðir hafa haldist innan ramma þröngrar fjárhagsáætlunar. Í þessu skyni ber að þakka starfsfólki sveitarfélagsins, sviðsstjórum og sveitarstjóra fyrir óeigingjarna vinnu við að ná settum markmiðum hvað varðar útgjöld sveitarfélagsins.
Sjálfstæðismenn vilja árétta að þrátt fyrir bætta afkomu á síðasta ári, má hvergi slaka á í stöðugri endurskoðun á rekstarkostnaði sveitarfélagsins á komandi árum. Aðhald í rekstri og efling atvinnulífs með fjölgun starfa er grundvöllur þess að hægt verði að bæta þjónustu við íbúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar og jafnframt að ná fram lækkun á skuldum sveitarfélagsins. Sjálfstæðismenn munu leggja höfuðáherslu á það markmið að rekstur sveitarsjóðs stuðli að aukinni hagsæld fyrir íbúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar á komandi árum.

Stefán Vagn Stefánsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:

Afar jákvætt er að sjá niðurstöðu ársreiknings 2013 en aldrei frá stofnun sveitarfélagsins hefur sveitarstjóði verið skilað með betri afkomu, 314 milljón króna tekjuafgangi og A hluti sveitarstjóðs með 11 milljóna króna tekjuafgangi. Árin 2012 og 2013 var rekstur sveitarsjóðs jákvæður og er það í fyrsta skipti sem sveitarstjóður verið rekin tvö ár í röð með hagnaði og ber það vott um stöðuga fjármálastjórn og góða vinnu starfsfólks sveitarfélagsins og fyrir hana ber að þakka. Þrátt fyrir miklar framkvæmdir í héraðinu á kjörtímabilinu er skuldahlutfall sveitarfélagsins undir þeim viðmiðum sem sett eru um fjármála sveitarfélaga eða 133% og inn í því eru allar skuldir sveitarsjóðs, þ.m.t. Árskóli að fullu.
Niðurstaða líkt og kynnt er hér í dag er forsenda þess að áfram sé hægt að halda uppbyggingu innviða sveitarfélagsins. Mikilvægt er að halda áfram á þeirri braut sem nú hefur verið mörkuð með aðhaldi í rekstri samhliða áframhaldandi uppbyggingu í Skagafirði.

Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2013, var samþykktur með níu atkvæðum.

 

Fleiri fréttir