Ásgarður tilnefndur til Orðsporsins 2014

Leikskólinn Ásgarður Hvammstanga, með Guðrúnu Láru Magnúsdóttur í forsvari, er tilnefndur til Orðsporsins 2014 fyrir framúrskarandi árangur við þróunarverkefnið „Leikur er barna yndi“ og innleiðingu flæðis í skólastarfið.

Á vef leikskólans ritar Guðrún Lára að það sé heiður fyrir þau í Ásgarði að hafa verið tilnefnd og að mikil gleði ríki í húsinu. "Okkur er efst í huga þakklæti fyrir að hafa verið tilnefnd, flæði er æði."

Alls eru 28 tilnefningar um Orðsporið 2014 og mun Jón Gnarr borgarstjóri Reykjaavíkur afhenda Orðsporið á Degi leikskólans, fimmtudaginn 6. febrúar n.k., í Hannesarholti í Reykjavík kl. 14:00.

Valnefnd, sem valdi tilnefningarnar, var skipuð formanni kynningarnefndar, formanni FSL, formanni FL, formanni skólamálanefndar, fulltrúum úr mennta- og menningarmálaráðuneytis, frá Heimili og skóla og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

 

Fleiri fréttir