Ásgeir Trausti gerir það gott í Japan

Ásgeir Trausti er í fyrsta sæti á Billboard Hot Overseas-listanum í Japan með smáskífulagið „King and Cross“, samkvæmt frétt Vísis.is. Þá er lagið í þrettánda sæti á Billboard Japan Hot 100 listanum en fréttir herma að íslenskir tónlistarmenn hafa aldrei áður ratað inn á þennan lista.

„Þetta er auðvitað alveg magnað og við vissum ekki af þessu fyrr en vinkona okkar, hún Yuka Ogura, sagði okkur frá þessu,“ segir María Rut Reynisdóttir, umboðsmaður Ásgeirs Trausta í samtali við Vísi. „Ogura sagðist aldrei hafa séð íslenska listamenn á þessum lista. Þetta er mælt með einhverri hlutfallsblöndu, blanda af spilun, iTunes-sölu og hversu oft hann er gúgglaður og skoðaður á Twitter. Þetta er einhvers konar hlutfall,“ útskýrir María Rut.

Hlaut EBBA-verðlaunin

Þá er Ásgeir í fyrsta sæti Billboard-listanum Next Big Sound, þar sem tekið er saman hröðustu og mestu sölurnar í liðinni viku á helstu tónlistarveitum á netinu og einnig tölfræðilegar líkur á mikilli velgengni í framtíðinni.

Ásgeir kom fram á EBBA-verðlaunahátíðinni í Hollandi þann 15. janúar sl. en hann hlaut einnig þau verðlaun. EBBA-verðlaunin eru veitt því tónlistarfólki sem þykir hafa náð framúrskarandi árangri með tónlist sinni út yfir landamæri heimalandsins. „Við vorum að klára tónleika á Eurosonic og það var rosa flott, mjög vel heppnað og góðar undirtektir,“ segir María Rut.

Plata Ásgeirs, In the Silence, sem hefur fengið prýðisdóma í erlendum miðlum, kemur út í Evrópu í dag. Þá er hún komin í forsölu á tonlist.is með tveimur glænýjum aukalögum og þremur lögum í órafmagnaðri útgáfu.

Tónleikaferðalag til Asíu, Bandaríkjanna og Evrópu

Í febrúar fer Ásgeir ásamt félögum sínum í fyrsta skipti til Asíu en þar koma þeir meðal annars fram með stórhljómsveitum á borð við Mogwai og The National. „Hann er auðvitað sérstaklega spenntur yfir að fara til Japans eftir þessar frábæru fréttir,“ segir María Rut.

Bandaríkin eru næsti viðkomustaður á eftir Asíu, að sögn Maríu Rutar, en þó eru nánari staðsetningar innan Bandaríkjanna ekki staðfestar. Þegar Ásgeir og félagar hafa lokið ferð sinni um Bandaríkin halda þeir aftur til Evrópu.

Fleiri fréttir