Auglýsa eftir styrkumsóknum

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir árið 2015. Á vef sveitarfélagsins er félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra, sem hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári, bent á að senda skriflegar og undirritaðar umsóknir þar um til sveitarstjóra.

„Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2014 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins á árinu 2014,“ segir á vefnum.

Umsóknir um styrki eða fjárframlög á árinu 2015 skulu hafa borist sveitarstjóra eigi síðar en 1. október nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Ekki er tekið við umsóknum í tölvupósti, er loks tekið fram á vefnum.

Fleiri fréttir