Auglýst eftir umsóknum í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra

Sveitarstjórn Húnaþings samþykkti á fundi sínum þann 9. apríl sl. að auglýsa eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra.

Markmið Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu.  Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.

Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra. Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á að úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og fleiri gögn er varða Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hunathing.is

Nánari upplýsingar veitir Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu skuli@hunathing.is.

Umsóknir skulu berast til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 30. apríl nk.

 

Fleiri fréttir