Aukasýning á Þriller á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
26.03.2015
kl. 11.28
Grunnskóli Húnaþings vestra hefur æft söngleiknum Þriller, eða Thrieller, eftir Gunnar Helgason á liðnum vikum. Fjórar sýningar hafa verið við húsfylli í Félagsheimili Hvammstanga.
Nú hefur verið ákveðið að bæta við einni sýningu til viðbótar, föstudagskvöldið 27. mars n.k. kl. 20:00. Fara miðapantanir fram hjá Röggu í síma 895-1905 og á netfanginu ragga@hunathing.is. Sem fyrr er miðaverðið 2.500 kr. en hver fjölskylda greiðir ekki yfir 5.000 kr. „Sýningin hefur hlotið mjög góða dóma og er hin besta skemmtun,“ segir í fréttatilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.