Aukasýning vegna góðrar aðsóknar

Aðsókn hefur verið góð á þær sjö sýningar sem Leikfélag Sauðárkróks hefur sýnt af leikritinu Rjúkandi ráð. Samkvæmt fréttatilkynningu verða tvær sýningar um helgina, uppselt á aðra þeirra og er hún fyrir Félag eldri borgara í dag, laugardaginn 10. maí kl. 16. Örfáir miðar eru lausir á hina á morgun, sunnudaginn 11. maí kl. 20.

Bætt hefur verið við sýningu þriðjudagskvöldið 13. maí kl. 20.

Leikritið, sem er eftir þá Jónas Árnason og Stefán Jónsson var upprunalega frumsýnt í Reykjavík árið 1959 og inniheldur þekkt lög eftir Jón Múla Árnason og m.a. lagið Fröken Reykjavík, en fegurðardísir sýningarinnar flytja það í uppfærslunni ásamt Lottu Lýsól.

Eftirfarandi er sýningarplanið:

8. sýning laugardag 10. maí kl. 16 (uppselt fyrir Félag eldri borgara)
9. sýning sunnudag 11. maí kl. 20 (örfáir miðar lausir)
Aukasýning þriðjudag 13. maí kl. 20 (allra síðasta sýning)

Miðapantanir í síma 8499434. Hér má skoða heimasíðu félagsins.

 

Fleiri fréttir