Barnaverndarstofa vill áframhaldandi starfssemi á Háholti
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra vill að Barnaverndarstofa hefji samningaviðræður við Hádranga um endurnýjun samnings meðferðarheimilis að Háholti í Skagafirði og hefur félaginu borist bréf frá Barnaverndarstofu þess efnis. Til stóð að loka heimilinu og var öllum starfsmönnum þess sagt upp fyrr í haust en nú horfir til betri vegar.
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðarráðs Svf. Skagafjarðar hefur mikil vinna farið fram um að snúa dæminu við og skoða hvaða leiðir væru færar eða hvort einhver grundvöllur sé til að halda starfseminni áfram.
-Maður lítur björtum augum á þetta ef niðurstaðan verður þessi. Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, að verja þessi þrettán störf og mögulega gæti þurft að bæta við ef reksturinn breytist, segir Stefán en ekki er útséð enn hvort starfsemin verði í óbreyttri mynd eða hvort unnið verði frekar að hugmyndum sem uppi hafa verið með lokaða deild eða nokkurs konar unglingafangelsi.
-Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur lýst yfir áhuga á lokaðri deild og munu viðræðurnar við Barnaverndarstofu m.a. snúast um það, segir Stefán Vagn.